Bókaútgáfan Salt h.f. var upphaflega stofnuð að frumkvæði áhugafólks og stjórnar Kristilegs stúdentafélags. Árið 1977 gaf félagið út bókina Fylgsnið eftir Corrie ten Boom og seldist hún í 2000 eintökum. Hún var síðan endurútgefin hjá bókaklúbbi AB í 5000 eintökum. Bókaútgáfan var formlega stofnuð árið 1978. Einstaklingum var boðin þátttaka og keyptu þó nokkrir hlutafé þó svo engin væri gróðavonin, enda fyrirtækið hugsjónaútgáfa. Markmiðið var að gefa út gott kristilegt lesefni til fræðslu og hvatningar. Salt ehf. | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: saltforlag@saltforlag.is
© Salt ehf. 2011